Fjárkúgun - Um Vítisengla og aðra handrukkara

Svokallaðar flugstéttir eða  það  útvalda hálaunafólkið sem vinnur hjá flugfélögum og svo  hjá ríkisfstofnun við flugumferðarstjórn notfærir sér  einna mest  aðalvopn verkalýðshreyfingar, til skamms tíma, eða verkfallsréttinum. Meðan flest  eða öll verkalýðsfélög  á Íslandi bera skyn á hin miklu efnahagsvandræði sem bæði einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir standa frammi fyrir  eftir hrun Íslands er sem ekkert hafi í skorist hjá flugstéttunum - þar er endalaust 2007. Það sem áður var neyðarvopn öreiga og verkalýðs og var notað  í neyð til að knýja fram lausn á deilum við atvinnurekendur er nú leiktæki fjárkúgara undir yfirskini verkalýðsfélaga. Þetta er ótrúlega öfugsnúið ástand og raunar þannig að verkalýðbarátta fyrri tíma fyrir sjálfsögðum mannréttindum verður að hálfgerðum brandara og í sjálfu sér móðgun við þá jafnaðarmenn sem stóð fremst í flokki í baráttu fyrri daga fyrir sjálfsögðum mannréttindum.

Verkfall flugvirkja og nýlegt verkfall flugumferðarstjóra ofan í verkfallshótanir flugfreyja og flugmanna eru ekkert annað fjárkúgun,ofbeldi og aðför að bæði almenningi og fyrirtækjum í margskonar rekstri á Íslandi sem tengist samgöngum og ferðamennsku.  Meðan meginþorri landsmanna hefur mátt þola lækkun á launum og skerðingu á lífskjörum sem fylgdi hruninu án þess að fá neinar leiðréttingar er ekki neitt sem réttlætir að  nú sé gefið seftir við ofstopamenn.

Held það gráti fáir eða engir ef og þegar ríkisstjórn Íslands setur lög á þessa menn. Myndi eiginlega halda fram að þessi stéttarfélög séu engu minni ógnun við samfélagið á Ísland en Vítisenglar. Þeir eru a.m.k. hættulegri þeirri samfélagssátt sem svo nauðsynlega þarf að ríkja á næstu mánuðum tið að viðreisn landsins geti orðið að veruleika.

 

Setjum lög á flugvirkja strax!


mbl.is Ræða lög á verkfall flugvirkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hamarinn

Flugvirkjar höfnuðu 11% launahækkunum, og samningi til eins árs. Hækkanir á almenna markaðinum voru 3,5%

Hvað segir þetta okkur?

Hamarinn, 22.3.2010 kl. 12:02

2 identicon

Góður pistill hjá þér. Við höfum ekki efni á svona aðgerðum á þessum krepputímum, fólk verður aðeins að staldra við og hugsa um hvað svona aðgerðir kosta samfélagið. kv. Edda

Edda Karlsdóttir (IP-tala skráð) 22.3.2010 kl. 12:07

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Talandi um Vítisengla, þá beita þeir fyrir sig lögfræðingum í því skyni að fara í kringum lög til að geta stundað skipulagða glæpastarfsemi. En aðilar sem stunda slík vinnubrögð eru þegar til staðar á Íslandi: fjármálafyrirtækin!

Guðmundur Ásgeirsson, 22.3.2010 kl. 12:29

4 identicon

Og Bretar og Hollendingar beita fyrir sig Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

Samtök Atvinnulífsins beita fyrir sig ríkisstjórninni og lætur setja lög á vinnudeilur.

Qwerty WHo (IP-tala skráð) 22.3.2010 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hrafn Þorgeirsson
Hrafn Þorgeirsson

Nóv. 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband